Totally hot

Totally hot

16.10.2008 17:09:51 / aniston

Smá svona sem ég var að heyra ;)

Shrek, Angelina Jolie and Brad Pitt snæddu hádegismat saman.

Shrek sagði: Ég hef alltaf talið að ég sé sterkastur allra í heiminum, en hvernig get ég verið viss?

Brad sagði: Ég er nokkuð viss um að ég er kynþokkafyllsti núlifandi karlmaður á jörðinni, en ég hef aldrei fengið það staðfest.

Angelina samsinnti þessu. Hún sagði: Mér er sagt að ég sé dásamlegust allra kvenna, en stundum efast ég.  
Þau ákváðu að besta leiðin til að fá staðfestingu á því hvort Shrek væri sterkastur, Brad sá kynþokkafyllsti og Angelina sú dásamlegasta, væri að spyrja hinn fræga talandi spegil: Spegill spegill herm þú mér....
Þau ákváðu að hittast aftur í hádegismat daginn eftir og bera saman bækur sínar.
Daginn eftir mætti Shrek með breitt bros á andlitinu.
Jæja, sagði hann. Það er satt. Spegillinn sagði mér að ég væri sá sterkasti í öllum heiminum.
Brad reigði sig og sagði: Og ég veit núna fyrir víst að ég er kynþokkafyllsti, núlifandi karlmaður á jörðinni. 
En Angelina sem hafði setið álút, lyfti nú fallega sorgmædda andlitinu sínu og sagði: Hver í fjandanum er þessi  Jóna Kolbrún??

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 18:40:25 / aniston

Til hamingju mæsa

Hún Mæsa mín er nú 26 ára í dag og vil ég heér með óska henni til hamingju með það. Vonandi áttu góðan dag og þú lítur nú alveg nákvæmlega eins út og þegar ég hitti þig fyrst fyrir 20 árum síðan ;)

» 11 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 16:01:21 / aniston

Loksins loksins

Jæja þá er komið að partýi ársins TUPPERWARE kynning hjá mér á sunnudaginn klukkan 15:00 stundvíslega. Endilega mætið því það verða þvílíkar kræsingar í boðinu og glæsileg tilboð hjá Hörpu skutlu úr hlíðarbænum. Allar megi þið taka með ykkur gest af því að því fleiri því meiri stemmning0

    Endilega commentið hverjar komast og hverjar ekki.

   Kveðja Jóna sæta á brekkubrautinni


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 17:03:28 / aniston

Eva snilli

Já árshátíð Gelloz heppnaðist ágætlega þetta árið og held ég að hún Eva mín eigi nú stóran þátt í því;). Við byrjuðum nú í bollu heima hjá henni fyrir mat og það var nú allt flögrandi í fiðrildum og blómum um alla veggi . Rölt var nú 12 skref yfir á Austur India og fengið sér mis sterka rétti sem hver og ein valdi sér af matseðlinum góða. Held  nú að flestir hafi nú verið vel sáttir með matinn og Indverska bjórinn þannig að saddar og sælar röltum við nú yfir aftur til þess að klára bolluna áður en haldið var út á lífið. En ég tjellinginn fór nú bara á fleigi ferð heim og fór ekkert niður í bæ þar sem gay partýin voru um allan bæ þar sem ég bjóst nú ekki við að ná mér í neinn hvort sem er (ekki nema þá kannski Höbbu) hehe. Takk stelpur fyrir skemmtilegt kvöld ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 09:04:11 / aniston

tene tene

ER farin til tenerife 8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 23:08:33 / aniston

Vax ???????????

Las þetta á b2 og varð að láta ykkur lesa etta því þetta er snild

 

Reynslusaga af vaxi

Ég raka venjulegast á mér lappirnar því ég er bara of nísk til að fara reglulega í vax til að ráða við þennan frumskóg á löppunum á mér. Síðan fór ég í Hagkaup um helgina og sá eitthvað rosalega sniðugt vax, auðvelt í notkun, sársaukalaust og það besta að maður á að vera laus við hárin í 4-5 vikur..... og það var á tilboði! Þannig að ég skellti mér á það.

Síðan svæfði ég börnin og fór síðan inn á bað til að byrja hreingerninguna, ætlunin var nefnilega að koma kallinum á óvart þegar hann kæmi heim úr ferðalaginu seinna um kvöldið. Ég tók vaxið upp úr kassanum, þetta var svona kaldir vaxrenningar sem átti að nudda á milli handanna til að hita áður en þeir væru settir á hárugu svæðin. Ég byrjaði að nudda renningana en sá fram á að það myndi taka alltof langan tíma og fékk því snilldarhugmynd. Ég lagði þá bara á borðið við hliðina á vaskinum, náði í hárblásarann, setti hann í botn og var nákvæmlega enga stund að hita þá.
Síðan setti ég þá á leggina á mér og....... þetta var.... heitt og alls.
ekki. sársaukalaust!

En ég viðurkenni þó að ég átti von á meiri sársauka, kona sem hefur gengist undir tvennar deyfilausar fæðingar og rúmlega 30 spor í hvort sinn, þolir nú alveg að 100+ hár séu rifin upp með rótum með einum vaxstrimli. Þannig að ég hélt áfram, kláraði lappirnar og eina rauðvínsflösku í leiðinni.

Þá fékk ég aðra brilljant hugmynd, ákvað að koma kallinum virkilega á óvart og leyfa honum að kíkja á eina sköllótta, það myndi án efa leiða til ýmissa skemmtilegra "æfinga". Þannig að ég athugaði með börnin, þau voru enn sofandi, náði mér í aðra rauðvínsflösku, hitaði vaxrenning, setti annan fótinn upp á klósettið og skellti renningnum í klofið..... og reif af. Ó MÆ GOD!!! Ó JESÚS KRISTUR!!! ÉG SÉ EKKERT, ÉG ER BLIND, ÞVÍLÍKUR SÁRSAUKI!!! Ég var blinduð af sársauka, sló niður hárblásarann og rauðvínsflöskuna áður en ég náði andanum aftur. Ég hélt ég hefði gelt sjálfa mig með því að rífa af mér hálfa píkuna! Ég þakkaði allavega fyrir að miðað við sársaukann þá gat ekki verið eitt stingandi strá eftir.

Ég leit á vaxrenninginn. FUCK! FUCK, SHIT, FUCK! Hann. var. tómur. Ekki eitt einasta hár á renningnum.... og ekki neitt vax heldur! HVAR VAR VAXIÐ??? Ég leit hægt niður, hrædd við sjónina sem beið mín..... allt vaxið af renningnum var í klofinu á mér. Ég leit til himins. WHY? Og gjörsamlega miður tók fótinn niður af klósettinu! Mistök! ÞVÍLÍK MISTÖK!
Ég gjörsamlega heyrði píkuna og rasskinnarnar límast saman!

Ég gekk um baðherbergisgólfið algjörlega miður mín og hugsaði hvað til bragðs skyldi taka. Hvernig get ég losnað við vaxið. Ég prófaði að toga það af með puttunum. Ekki góð hugmynd. Ég yrði að láta það leysast upp, bræða það á einhvern máta. Hvað bræðir vax? Mér varð litið á hárblásarann en hvarf strax frá þeirri hugmynd þar sem mig langaði ekki til að útskýra brunasárin á brunadeildinni niður á Borgarspítala. Vatn! Vatn bræðir vax.
Ég lét vatn renna í baðið, svo heitt að Saddam Hussein hefði kosið að nota það til að pynda óvini sína, ég aftur á móti dró andann djúpt, gekkst undir pyntingar sjálfviljug og settist í baðkarið.

Ég komst að nokkru sem ég hafði ekki vitað áður. Vatn bræðir ekki vax!
Neibb, 60 gráðu heitt vatn bræðir ekki vax, aftur á móti var ég nú límd föst við baðbotninn! Heilinn fór í óverdræv, hvernig gat ég bjargað mér úr þessari klípu? Eftir ýmsar tilraunir sem allar mislukkuðust, náði ég í Lady rakvélina mína og ákvað að skafa vaxið af! Ef ykkur langar til að vita hvernig það var legg ég til að þið rakið ykkur með ársgamalli vel notaðri rakvél, notið ekki vatn né nokkurs konar sápu. Þá komist þið nálægt því!

Ég var að reyna að skafa vaxið af þegar ég kom loksins auga á bjargvættinn minn. Hallelújah, Praise the Lord. Það fylgdi nefnilega með í pakkanum svona vax remover. Ég hafði bara ekki tekið eftir því fyrr. Ég flýtti mér að ná í bómull, hella slatta í og nudda yfir vaxið. ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! Klofið á mér brann! Það var eins og ég hefði hellt yfir það bensíni og kveikt í! En mér var sama því helvítis draslið virkaði. Því þoldi ég sársauka sem yfirgnæfði allan þann sársauka sem ég hafði upplifað við fæðingarnar og gerði mig 150% tilbúna í 10 fæðingar í viðbót.

Þegar ég var búin að hreinsa allt vaxið af skoðaði ég djásnið. Þrátt fyrir öll ósköpin hafði ekki. eitt. einasta. hár. horfið! Ekki. eitt. einasta!!!

Þegar maðurinn kom heim var ég búin að víggirða minn helming af rúminu.....

Þetta er semsagt stolið af bloggi :$


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 17:50:57 / aniston

Smá svona það sem mig vantar

Finnst þetta nú ekkert mikið sem maðurinn þarf að hafa hehe.

Stal þessu á síðunni hjá Bubbu frænku.


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 17:24:27 / aniston

smá auglýsingar

  • Maja systir búin að eignast strák 15 merkur og 53 cm
  • Er búin að kaupa mér íbúð

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 18:12:56 / aniston

Partý og vinna hvernig fer það?

Jæja ég veit að það er nú svolítið langt síðan ég bloggaði síðast en það er bara svo mikið að gera hjá mér að maður hefur ekki tíma til að blogga nema á þriggja mánaða fresti hehe.

Gelloz gleðin er búin og fór nefndin ( Eygló, Heiðrún og ég) stóð sig alveg frábærlega og held ég að allir sem komu hafi skemmt sér svona þokkalega vel. Búningakeppnina malaði ég náttúrlega og svo vann mitt lið auðvitað í frábæru keppninni sem Reykjavíkur stelpurnar lögðu hart að sér að gera;). Ég var svo auðvitað líka lang feitust í pottinum sem var náttúrlega vinningur útaf fyrir sig :S en held að ég reyni frekar við mjóustu að árinu liðnu haha.

Það er svaka partý hjá Gústa á morgun held að það sé útaf því að ég og Kalli eigum afmæli;) en gallinn er sá að ég á helgarvakt daginn eftir. Þannig að ef einhver er æstur í að gefa mér afmælisgjöf þa´má sá eða sú endilega koma og ná í mig heim klukkan 07:00 á laugardagsmorguninn og keyra mig upp í tanga ( vinnsamlegast látið mig vita fyrir 00:00 annað kvöld ;).

Ég er nú búin að skrifa undir kaupsamning á íbúð en er reyndar að bíða eftir niðurstöðu úr greyðslumatinu sem þýðir að ég veit nú ekki hvort ég geti keypt en það eru um 85 % líkur að það gangi nú í gegn þar sem að peningar eru nú það eina sem ég á nóg af hehe.

En sá eða sú sem er æstur í að bjóða mér í videó þá langar mig rosalega til að sjá Departed en hef heyrt að hún sé geggjuð en vandin er sá að flestir eru búnir að sjá hana sem búa á akranesi og mig langar ekki að horfa ein á svona mynd endilega hafið samband 8).

Jæja ég bið að heilsa ykkur og minni ykkur á að þetta er í síðasta skiptið sem ég blogga meðan ég er ennþá tvítug múhahaha

Fiskar: Það sem þér finnst erfiðast að gefa upp á bátinn, er þörfin fyrir að hafa alltaf rétt fyrir þér. En þegar þú sleppir af henni takinu, hefurðu miklu meiri orku! Veldu félaga þína af kostgæfni. Ekki velja þjóskar týpur.     Held nú að ég hafi alltaf rétt fyrir mér ;)

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 20:16:00 / aniston

Bara svona rétt fyrir áramótin

  • Tími til kominn að fara heim þegar:
  • Þú hefur algjörlega enga hugmynd um hvar skórnir þínir eru
  • Þú  varðst að fá einhvern inni á klósetti til að koma og hjálpa þér að tosa upp buxurnar og hjálpa þér af setunni
  • Þig langar alltíeinu rosalega til að lemja einhvern
  • Síðast þegar þu þurftir á klóið sástu að þú leyst meir út eins og einhver úr hryllingsbúðinni frekar en gyðjan sem þú varst fyrir nokkrum klukkustundum síðan
  • Klukkan er 5.00, nú á að fara heim.  Þú misstir hlöllann þinn í gólfið en tekur hann upp aftur og heldur áfram að borða
  • Þú ferð að gráta
  • Það eru minna en þrír klukkutímar í það að þú átt að vera mætt í vinnu
  • Þú fannst dýpri hliðina á fyrirtækislúðanum
  • Maður sem þú ert að daðra við... á fullu, var kennarinn þinn í fimmta bekk
  • Þörfin fyrir að byrja týna af þér fötin, klifra uppá borð og syngja er orðin furðulega yfirþyrmandi
  • Þú ert búin að gleyma hvar þú átt heima
  • Þú ert komin með dimma vískírödd af öllum sígarettunum sem þú hefur reykt í kvöld af því (eins og þú ert búin að segja 20 sinnum) þú reykir bara á fylleríum.
  • Þú öskrar á barþjónnin af því þú sakar hann um að hafa gefið þér hreint gos í glasið, en það er bara af því þú finnur ekki lengur bragðið af vodkanu eða gininu
  • Þú heldur að þú sért komin í rúmið en koddinn þinn minnir furðulega mikið á skútuborgara
  • Þú byrjar öll samtöl með "ekki taka þetta illa upp en..."
  • Þú fattar ekki að klósettlokið er niðri þegar þú sest á það
  • Faðmlögin þín og knús fer helst að minna glímuleik með tosum niður andstæðingin taktík
  • Þú ert svo þreytt að þú vilt bara setjast beint á stéttina, ( og hví ekki!)
  • Þú sýnir vinum að stelpur geta alveg pissað standandi ef þeim virkilega langar
  • Þú byrjar að kela við menn frá miðausturlöndum á miðju dansgólfi :!:


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 16:52:49 / aniston

Eitt jólakort var sent.

Ætla að óska ykkur gleðilegra jóla og vona að þið munið hafa það gott eskurnar.

Sendi bara eitt jólakort því ég er glötuð en ég lofa að það verða örlítið fleiri næstu jól.

Kossar og knús frá mér.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 19:10:48 / aniston

Gæti verið rétt???????

Áður en hugsað er um barneignir skal þetta gert fyrst.....

Fituprófið

 

Smurðu hnetusmjöri á sófann og aðeins upp á gardínurnar. Settu nokkrar kjötbollur á bak við sófann og láttu þær vera þar yfir sumarið.

 

Leikfangaprófið

 

Náðu í kassa með 25 kílóum af Legó-kubbum. Fáðu vin þinn til að dreifa vel úr kubbunum á gólfið í íbúðinni. Láttu binda fyrir augun á þér. Reyndu svo að fara frá svefnberginu og inn í eldhús og aftur til baka. Það er bannað að vera í skóm og alveg bannað að æpa því það getur vakið barnið um nætur.

 

Stórmarkaðsprófið

 

Fáðu lánað eitt dýr af millistærð (t.d. geit) og farðu með hana í næsta stórmarkað að versla. Hafðu auga með geitinni allan tímann og borgaðu fyrir allt sem hún étur eða eyðileggur.

 

Fataprófið

 

Hefurðu prófað að klæða tveggja ára gamalt barn í föt? Fáðu þér stóran, lifandi og spriklandi kolkrabba. Troddu honum í lítið innkaupanet og passaðu að hafa alla armana inni í pokanum.

 

Matarprófið

 

Keyptu þér stóra plastkönnu. Fylltu hana til hálfs með vatni og hengdu hana svo upp í loftið í snúru. Láttu könnuna sveiflast til og frá eins og pendúl. Reyndu nú að koma einni matskeið af hafragraut niður um stútinn á könnunni um leið og þú leikur flugvél með skeiðinni. Helltu svo öllu innihaldinu á gólfið.

 

Næturprófið

 

Saumaðu þér lítinn poka úr sterku efni og fylltu hann með 4-5 kílóum af sandi. Klukkan 15 tekur þú pokann upp og byrjar að ganga um gólf með hann um leið og þú raular. Þessu heldur þú áfram til kl. 21. Leggðu þá pokann frá þér og stilltu vekjaraklukkuna á 22. Þá þarftu að vakna, ná í sandpokann og syngja öll þau lög sem þú hefur mögulega heyrt um ævina.

Semdu svo 10-12 ný lög og syngdu þau til kl. 4 um morguninn á meðan þú gengur um gólf með pokann. Stilltu vekjaraklukkuna á 5. Vaknaðu og taktu til morgunmat. Gerðu þetta alltaf 5 daga í röð og líttu glaðlega út!

 

Sköpunargáfuprófið

 

Fáðu þér eggjabakka. Búðu til krókódíl úr honum með aðstoð skæra og málningar. Fáðu þér svo tóma klósettrúllu og búðu til fallegt jólaljós úr henni. Þú mátt aðeins nota límband og álpappír. Að lokum skaltu fá þér tóma mjólkurfernu, borðtennisbolta og tóman Kornflakes-pakka. Búðu til alvöru eftirlíkingu af Eiffel-turninum.

 

Bílprófið

 

Gleymdu því að fá þér BMW og fáðu þér station-bíl (þið vitið þessi löngu að aftan til að geyma vagna, kerrur og alls konar fylgihluti!) Keyptu þér súkkulaðiís í brauði og settu hann í hanskahólfið. Láttu hann vera þar.

Finndu krónu. Settu hana inn í geislaspilarann í bílnum. Fáðu þér stóran pakka af kexkökum og myldu þær allar í aftursætið. Nú er bíllinn tilbúinn!

 

Þolpróf kvenna

 

Fáðu lánaðan stóran grjónapúða og festu hann framan á magann á þér. Þú getur notað öryggisnælur og nælt pokanum í fötin þín. Hafðu pokann framan á þér í 9 mánuði. Að þeim tíma liðnum geturðu fjarlægt 1/10 af innihaldi pokans ? 9/10 verða eftir.

 

Þolpróf karla

 

Farðu inn í næsta apótek. Settu seðlaveskið þitt opið á borðið og segðu apótekaranum að taka eins og hann vill. Farðu nú í næsta stórmarkað. Farðu inn á skrifstofu og gerðu samning við eigandann um að launin þín verði lögð inn á reikning búðarinnar um hver mánaðamót. Keyptu þér dagblað. Farðu með það heim og lestu það í ró og næði. Í síðasta sinn!

 

Lokaprófið

 

Komdu þér í samband við par sem á barn. Útskýrðu fyrir þeim hvernig þau geta bætt sig í agamálum, þolgæðum, þolinmæði, klósettþjálfun og borðsiðum barnsins. Legðu áherslu á að þau megi aldrei láta barnið sitt hlaupa um eftirlitslaust. Njóttu kvöldsins, því þú munt aldrei aftur hafa rétt svör við öllu.

 

Ertu enn tilbúin(n) til að eignast barn? -


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 20:31:10 / aniston

Brjóst

Þetta eru eðlileg brjóst hehehe

 http://www.007b.com/breast_gallery_B.php

http://www.007b.com/breast_gallery.php

Þetta eru ekki eðlileg brjóst

http://www.fugly.com/media/IMAGES/Boobies/super_boobs.jpg

Held bara að ég sé þokkalega ánægð núna með mín eftir þetta hehehe


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 21:09:57 / aniston

Blekking

Jæja síðasta vika hjá mér var svona.

Föstudagur : fór til Ellu gellu og borðuðum saman, fengum okkur pínu bjór og höfðum það huggó. Fékk mér svo smá gin og var orðin hress ;) fórum á mörkina feingum okkur opal skot ( var orðin of hress) fékk mér tekila og man ekki meir.

Laugardagurinn: Dúndrandi hausverkur,illt í maganum og ældi. Fór með fjölskyldunni út að borða á fínum veitingastað þar sem mamma átti afmæli á sunnudeginum. Maturinn var fínn en hafði samt frekar litla list. Kem heim og kíki rúnt með Dodda og stelpunum ( enn þunn ). Ætla aldrei að drekka aftur.

Sunnudagurinn: Fer að vinna en titra eins og einhver sjúklingur er semsagt enn þunn sem gerist nú ekki oft að það séu teknir tveir dagar í þynku. Ætla aldrei að drekka aftur.

Mánudagurinn: jæja þynkan farinn en er dálítið þreytt. Ætla aldrei að drekka aftur.

Þriðjudagurinn: já ætli maður skrái sig ekki í þessa ferð sem er á föstudaginn í vinnunni en fer samt edrú. Ætli maður verði ekki edrú fram að áramótum.

Miðvikudagurinn: Allir að tala um þessa ferð og það þýði ekki að vera edrú þessi ferð sé hvort sem er búin það snemma að ég geti bara farið beint heim og verið hress í vinnunni á laugardaginn. Ja kannski fær maður sér einn til tvo en ALLS ekki fleiri.

Jæja hvað segiði um þetta? Er maður geðveikur eða hvað? Maður fær sér bjór gerir allt vitlaust verður geggjað þunnur í marga daga með geggjaðan móral og getur samt hugsað sér að gera þetta aftur.

Er að fara á tónleika á morgun að horfa á kærastann minn syngja í laugardagshöllinni sem verður örugglega geðveikt og sem þýðir það að ég fæ að hitta kærustuna mína líka þar sem hún ætlar að koma með mér ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 18:32:00 / aniston

Gudda 25

Jæja eskurnar þá er Dúfan orðin 25 ára sem er nú svakalegur aldur en samt skemmtilegur;). Afmælið hjá henni heppnaðist líka svona svakalega vel þó það hafi ekki margir farið í pottinn. En vinum hans Mána fannst nú örugglega sum skemmtiatriðin aðeins of gróf og skilja nú ekkert í honum að vera að dandalast með svona gellu hehe. Það var svo skellt sér á mörkez með þennann líka fína einkabílstjóra sem sá örugglega eftir að hafa jánkað því að keyra þetta pakk:S. Á mörkez var alveg þokkalega gaman fyrir utan þessa helv... þjófa sem ganga um og stela símum endalaust. Semsagt símanum mínum var stolið AFTUR en ég er nú samt komin með nr mitt aftur þannig að þið getið farið að hringja í mig aftur jey jey8).

Jæja en nú er maður komin í þokkalega pásu þar sem sunnudagurinn var ekki alveg jafn skemmtilegur og laugardagurinn :$.

Bið að heilsa eskurnar og hafiði það gott.


» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Skoða
Könnun
Hver vinnur enska titilinn?